6. mars 2009

Garðyrkjuferð í Monet garðinn í Giverny og garða Parísar

Frá Monet garðinum í París.
Í kjölfar vel heppnaðar garðyrkjuferðar á Chealsee Flower Show á sl. ári,  hefur garðyrkjumaðurinn og félagsmaður í GÍ, Birgir Eiríksson ákveðið að fara aðra garðyrkjuferð núna í vor og núna til Frakklands að skoða Monet garðinn sem og aðra garða Parísar svo sem Luxebourg garðinn og Citroen garðinn o.fl. áhugaverða garða.  Hefð er komin á að skoða einnig garðyrkjuverslun/stöð. Um er að ræða 4 daga ferð sem stendur yfir aðra helgina í maí. Reynt verður að gera ferðina eins ódýra og hægt er. Flogið verður á ódýru flugfari með Flugleiðum á tæp 40 þús og ódýr gisting hefur verið fundin. Lest verður tekin til og frá Giverny en annars notaðir leigubílar innan Parísar (svo allir geti komist með). Þá er smávegis tekið fyrir skipulagningu og utanumhald. Nú þegar hafa nokkrir skráð sig í ferðina. Reynt verður að ganga frá fluginu snemma til að fá það svona ódýrt. Ef áhugi er á að koma með eða fá nánari upplýsingar, þá sendið póst á BE@Hive.is eða hringið í 693-8020.

 

 

Kveðja Birgir garðyrkjumaður


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta